Persónuvernd
DRÖG. Atriði í hornklofum vantar staðfestingu áður en opnað er.
Ábyrgðaraðili persónuupplýsinga er 730 ehf., kt. [kennitala], Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði. Fyrirspurnir um persónuvernd berast á [netfang].
Hvað við geymum og hvers vegna
Þegar þú pantar geymum við nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang ef senda á pöntunina, ásamt því sem þú pantaðir og hvernig var greitt. Þetta þarf til að afgreiða pöntunina, láta þig vita um stöðu hennar og uppfylla bókhaldsskyldu. Gögn um pantanir eru geymd í sjö ár frá lokum reikningsárs eins og lög um bókhald krefjast.
Kennitala sem þú gefur upp fyrir bankakröfu er send greiðsluþjónustunni til að stofna kröfuna og er ekki geymd hjá okkur. Greiðsla með Aur fer fram í appi Aur og við fáum aðeins staðfestingu á að greitt hafi verið.
Gjafabréf: nafn viðtakanda og kveðja sem þú skrifar eru geymd með gjafabréfinu og birt þeim sem fær kóðann.
Póstlisti: netfang sem þú skráir er aðeins notað til að láta þig vita þegar nýtt kemur úr ofninum. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með hlekknum í póstinum eða með því að senda okkur línu.
Vafrinn þinn
Vefurinn notar engar rekjandi vafrakökur og enga greiningarþjónustu þriðja aðila. Karfan þín er vistuð í vafranum þínum, ekki hjá okkur, þar til þú pantar.
Hverjir fá gögnin
Við seljum aldrei upplýsingar um þig. Þær fara aðeins til þeirra sem þarf til að afgreiða pöntunina: greiðsluþjónustunnar (Kling fyrir bankakröfur, Aur fyrir Aur-greiðslur), Póstsins þegar pöntun er send, tölvupóstþjónustu sem sendir staðfestingar, og hýsingaraðila gagnagrunnsins (Supabase, gögn geymd innan EES). Bókhaldsgögn fara til bókara og yfirvalda eftir því sem lög krefjast.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt þegar við þurfum þær ekki lengur lögum samkvæmt, og að andmæla vinnslu. Sendu beiðni á [netfang]. Sért þú ósátt við meðferð okkar á upplýsingum þínum má kvarta til Persónuverndar, personuvernd.is.